Námskeið í Kappa og Sportfeng

  • 30. apríl 2012
  • Fréttir
Námskeið í Kappa og Sportfeng

Tölvunefnd LH heldur nú á vordögum námskeiðaröð í mótaforritunum Kappa og Sportfeng að er fram kemur í tilkynningu frá LH:

 
„Þið eruð hvött til að kynna þessi námskeið vel í ykkar félögum, senda tilkynningar á póstlista og heimasíður og munið að þessi þekking er nauðsynleg í hverju félagi og gott að mennta sem flesta í notkun þessara forrita.
 
Ekkert gjald er tekið fyrir þátttöku, nóg að mæta með skriffæri þar sem Handbók Kappa og Sportfengs verður dreift á staðnum. Athugið þó að fyrir þá sem vilja undirbúa sig, þá er handbókin aðgengileg á vef Sportfengs: http://www.sportfengur.com/SportFengur/temp/Handbok.pdf
  • Borgarnes 2.maí – kl. 19:30
  • Selfoss 3.maí – kl. 19:30
  • Sauðárkrókur 3.maí – kl. 19:30
  • Reykjavík 8.maí – kl. 19:30
  • Egilsstaðir 9.maí – óákv.
Skráning á námskeiðin fer fram á [email protected].“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link