Nátthrafninn falur

  • 4. apríl 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Nátthrafn frá Dallandi er falur. Margir vilja kaupa, en enginn hefur enn tekið stóra skrefið.

Halldór stefnir á Landsmót

Nátthrafn frá Dallandi sigraði ísölt “Þeirra allra sterkustu” með miklum yfirburðum á laugardaginn var. Þetta er þriðja árið í röð sem Nátthrafn vinnur þennan titil. Knapi eins og jafnan áður Halldór Guðjónsson.

Eins og flestir vita sem fylgjast með fréttum úr hestaheiminum er Halldór búsettur í Svíþjóð um þessar mundir. Hann flaug heim viku fyrir ístöltið til að stilla Nátthrafninn af, en Fredrik Sandberg, tamningamaður í Dal, hefur þjálfað hestinn í vetur. Gunnar Dungal segir að Fredrik muni þjálfa Nátthrafn áfram og hesturinn muni væntanlega fara í úrtöku fyrir Landsmót. Halldór verði knapi á hestinum í keppni eins og hingað til.

Eins og greint var frá í Hestablaðinu í fyrra er Nátthrafn falur. Ýmsir hafa borið víurnar í hestinn en enginn tekið skrefið til fulls. Enda ljóst að slíkur gripur verður ekki seldur á venjulegu reiðhestsverði.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link