Nemendur hestabrautar stóðu heiðursvörð
Fjölbrautaskóli Suðurlands fagnaði 30 ára afmæli skólans á siðastliðinn þriðjudag.
Nemendur á hestabraut skólans settu virðulegan svip yfir afhjúpun á nýju skilti með einkenni skólans.
Á meðfylgjandi myndum má sjá nokkra nemendur hestabrautar, þau Hjördísi Grétu Kristinsdóttur, Esteri Hilmarsdóttur, Írisi Björk Garðarsdóttur, Valborgu Tryggvadóttur, Viktor Elís Magnússon, Signý Hólm Friðjónsdóttur, Gylfa Björgvin Guðmundsson, Jónu Þórey Árnadóttur, Indíönu Ósk Róbertsdóttur, Arnfríði Tanju Hlynsdóttur og Leu Birnu Stefaníudóttur fara fyrir skrúðgöngu að lokastað á hestum sínum, þar sem þau stóðu heiðursvörð við afhjúpunina.
Hér er hægt að fræðast meira um hestabraut F.Su.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV