Niðurstöður frá Síðsumarssýningu á Hvammstanga
Síðsumarssýningu á Hvammstanga lauk í gær með yfirlitssýningu og verðlaunaafhendingu, en að þessu sinni komu 63 hross til fullnaðardóms.
Árborg frá Miðey fékk hæstu aðaleinkunn hrossanna, 8,19, þar af 8,39 fyrir hæfileika og 7,88 fyrir byggingu. Hæstu hæfileikaeinkunn hlaut Ósk frá Árdal, 8,44, þar af hlaut hún 9 fyrir skeið og vilja og geðslag og 8,5 fyrir tölt og brokk. Hæstu sköpulagseinkunn hlaut Trú frá Varmalæk, 7 vetra meri undan Kjarna frá Varmalæk og Tinnu frá Varmalæk. Hlaut m.a. einkunnina 9,5 fyrir fótagerð og prúðleika. Meðfylgjandi er listi yfir efstu hross sýningarinnar.
Hryssur 7 vetra og eldri
1. IS2003280339 Árborg frá Miðey
Sköpulag: 7,88
Kostir: 8,39
Aðaleinkunn: 8,19
2. IS2004201081 Sif frá Söguey
Sköpulag: 8,25
Kostir: 8,08
Aðaleinkunn: 8,09
3. IS2004238872 Urður frá Skarði
Sköpulag: 7,71
Kostir: 8,18
Aðaleinkunn: 7,99
Hryssur 6 vetra
1. IS2005257750 Mirra frá Vindheimum
Sköpulag: 8,20
Kostir: 8,02
Aðaleinkunn: 8,09
2. IS2005225131 Hringhenda frá Seljabrekku
Sköpulag: 7,76
Kostir: 8,14
Aðaleinkunn: 7,99
3. IS2005286699 Ófelía frá Holtsmúla 1
Sköpulag: 7,90
Kostir: 8,01
Aðaleinkunn: 7,97
Hryssur 5 vetra
1. IS2006235591 Ósk frá Árdal
Sköpulag: 7,70
Kostir: 8,44
Aðaleinkunn: 8,14
2. IS2006256286 Kátína frá Steinnesi
Sköpulag: 7,59
Kostir: 8,23
Aðaleinkunn: 7,97
3. IS2006256139 Stikla frá Efri-Mýrum
Sköpulag: 8,11
Kostir: 7,84
Aðaleinkunn: 7,95
Hryssur 4 vetra
1. IS2007255177 Kría frá Syðra-Kolugili
Sköpulag: 7,94
Kostir: 7,58
Aðaleinkunn: 7,73
2. IS2007266201 Vissa frá Torfunesi
Sköpulag: 8,22
Kostir: 7,39
Aðaleinkunn: 7,72
3. IS2007235846 Plóma frá Skrúð
Sköpulag: 7,76
Kostir: 7,69
Aðaleinkunn: 7,72
Stóðhestar 6 vetra
1. IS2005157126 Muninn frá Skefilsstöðum
Sköpulag: 8,26
Kostir: 7,57
Aðaleinkunn: 7,85
Stóðhestar 5 vetra
1. IS2006155500 Stúdent frá Gauksmýri
Sköpulag: 8,19
Kostir: 7,89
Aðaleinkunn: 8,01
2. IS2006135936 Taktur frá Stóra-Ási
Sköpulag: 8,41
Kostir: 7,73
Aðaleinkunn: 8,00
3. IS2006135908 Sleipnir frá Runnum
Sköpulag: 7,73
Kostir: 7,59
Aðaleinkunn: 7,65
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH