Hestamannafélagið Skagfirðingur Niðurstöður frá WR Hólamóti

  • 25. maí 2026
  • Fréttir
Keppt í hinum ýmsu greinum og styrkleikaflokkum

Alþjóðlegt (WR) íþróttamót Hestamannafélagsins Skagfirðings og UMSS fór fram á Hólum í Hjaltadal um helgina. Þátttaka í mótinu var góð og margt góðra knapa og gæðinga. Keppt var í ýmsum greinum íþróttakeppni auk skeiðgreina í sjö mismunandi aldurs og styrkleikaflokkum.

Hér að neðan má lesa um sigurvegara mótsins í hverri grein en heildarúrslit eru aðgengileg í HorseDay appinu.

Sigurvegarar í Meistaraflokki

Tölt T1: Þórarinn Eymundsson og Náttfari frá Varmalæk 7,83 í úrslitum
Fimmgangur F1: Finnbogi Bjarnason og Einir frá Enni 7,33 í úrslitum
Fjórgangur V1: Vera Schneiderchen og Feykir frá Selfossi 7,50 í úrslitum
Tölt T2: Vera Schneiderchen og Feykir frá Selfossi 8,00 í úrslitum
Tölt T3: Björg Ingólfsdóttir og Völva frá Dýrfinnustöðum 6,83 í úrslitum
Fjórgangur V2: Björg Ingólfsdóttir og Leví frá Vatnsleysu 6,60 í úrslitum
Fimmgangur F2: Þorsteinn Björn Einarsson og Óskar frá Eystri-Sólheimum 6,52 í úrslitum
250 metra skeið: Áróra Heiðbjört Hreinsdóttir og Tvistur frá Garðshorni 23,21 sekúnda
150 metra skeið: Daníel Gunnarsson og Sigur frá Bessastöðum 15,08 sekúndur
100 metra skeið: Guðmar Freyr Magnússon og Gljásteinn frá Íbishóli 8,05 sekúndur
Gæðingaskeið: Bjarni Jónasson og Eðalsteinn frá Litlu-Brekku 7,58 í einkunn

Sigurvegarar í 1.flokki

Tölt T3: Alicia Marie Flanigan og Hnokki frá Dýrfinnustöðum 6,57 í úrslitum
Fimmgangur F2: Anna Carina F. Rautenbach og Fáfnir frá Hofi I 6,33 í úrslitum
Fjórgangur V2: Alicia Marie Flanigan og Hnokki frá Dýrfinnustöðum 6,53 í úrslitum
Gæðingaskeið: Hrefna Rós Lárusdóttir og Sjarmur frá Ólafsvík 5,79 í einkunn í úrslitum

Sigurvegarar í 2.flokki

Tölt T3: Þóranna Másdóttir og Dalmar frá Dalbæ 6,28 í úrslitum
Fjórgangur V2: Mara Dieckmann og Loftur frá Ytri-Hofdölum 6,13 í úrslitum
Fimmgangur F3: María Ósk Ómarsdóttir og Sólrósin frá Íbishóli 5,92 í úrslitum

Sigurvegarar í 3.flokki

Tölt T7: Stefanie Wermelinger og Heba frá Flugumýri 6,00 í einkunn
Fjórgangur V5: Stefanie Wermelinger og Heba frá Flugumýri 5,62 í úrslitum

Sigurvegarar í Ungmennaflokki

Tölt T1: Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Flóra frá Dvergasteinum 6,72 í úrslitum
Fimmgangur F1: Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Kalsi frá Þúfum 6,63 í forkeppni
Fjórgangur V1: Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Hugur frá Efri-Þverá 6,43
Gæðingaskeið: Arnór Darri Kristinsson og Ófeig frá Syðra-Holti 6,79 í einkunn
100 metra skeið: Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Alviðra frá Kagaðarhóli 8,06 í úrslitum

Sigurvegarar í unglingaflokki

Tölt T1: Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Krummi frá Hestkletti 6,67 í úrslitum
Tölt T2: Gígja Glódís Gunnarsdóttir og Háleggur frá Saurbæ 5,33 í úrslitum
Fjórgangur V1: Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Krummi frá Hestkletti 6,57 í úrslitum
Fimmgangur F1: Arnór Darri Kristinsson og Ófeig frá Syðra-Holti 6,86 í úrslitum

Sigurvegarar í barnaflokki

Tölt T3: Daníel Örn Karlsson og Snerra frá Skálakoti 5,83 í úrslitum
Tölt T7: Brynja Rósanna Brynjólfsdóttir og Steinöld frá Fagrabergi 6,00 í úrslitum
Fjórgangur V3: Daníel Örn Karlsson og Snerra frá Skálakoti 6,00 í úrslitum

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link