Niðurstöður milliriðils í B-flokki gæðinga
Það skiptust sannarlega á skin og skúrir í milliriðli B-flokks gæðinga sem var síðasti dagskráliður á Hvammsvellinum á landsmóti í kvöld. Þar komu fram 30 efstu hestar úr forkeppni gærdagsins og þurftu þau að sýna mátt sinn og megin á fjórum gangtegundum. Skemmst er frá því að segja að sýningar keppenda fóru misvel fram.
Álfur frá Selfossi og Christina Lund gáfu tóninn með sýningu upp á 8,70. Grái töffarinn Hrímnir frá Ósi bætti þó um betur skömmu og fékk 8,89 fyrir reffilega sýningu undir stjórn Guðmundar Björgvinssonar. Loki frá Selfossi fékk sömu einkunn þó sýning þeirra Sigurðar Sigurðarsonar bæri þess merki að þeir ættu ansi mikið inni.
Hestur Berglindar Ragnarsdóttur, Frakkur frá Laugavöllum, rann til í beygju og féll með þeim afleiðingum að Berglind viðbeinsbrotnaði.
Ísólfur Líndal Þórisson sýndi Freyði frá Leysingjastöðum II af öryggi og Glóðafeykir frá Halakoti fór fasmikill um völlinn undir Einari Öder Magnússyni. Esja frá Kálfholti fór settlega undir Ísleifi Jónassyni og reynsluboltarnir Sveigur frá Varmadal og Hulda Gústafsdóttir stóðu fyrir sínu.
Hins vegar opnuðu hliðverðir völlinn þegar sýning Jódísar frá Ferjubakka 3 og Huldu Finnsdóttur var ekki lokið og Sóllilja frá Álfhólum var því lögð af stað inn á of snemma. Leó Geir Arnarsson hætti sýningu Krítar frá Miðhjáleigu eftir að henni brást bogalistinn á stökki. Heyrandi frá brekkudómurum virtist þeim nóg um óöruggar “kususýningar” á stökki.
Niðurstöður milliriðilsins eru meðfylgjandi en B-úrslit flokksins fara fram á föstudag kl. 14.30 og A-úrslit síðan á sunnudag kl. 11. Er ljóst að þá munu etja kappi bestu kóngar meðal klárhesta.
Framundan er úrslitaveisla.
1 Hrímnir frá Ósi / Guðmundur Björgvinsson 8,89
2 Loki frá Selfossi / Sigurður Sigurðarson 8,89
3 Glóðafeykir frá Halakoti / Einar Öder Magnússon 8,74
4 Álfur frá Selfossi / Christina Lund 8,70
5 Freyðir frá Leysingjastöðum II / Ísólfur Líndal Þórisson 8,63
6 Sveigur frá Varmadal / Hulda Gústafsdóttir 8,60
7 Stefnir frá Þjóðólfshaga 1 / Viðar Ingólfsson 8,59
8 Hlekkur frá Þingnesi / Eyjólfur Þorsteinsson 8,58
9 Esja frá Kálfholti / Ísleifur Jónasson 8,58
10 Gáski frá Sveinsstöðum / Ólafur Magnússon 8,56
11 Segull frá Mið-Fossum 2 / Viðar Ingólfsson 8,56
12 Fura frá Enni / Árni Björn Pálsson 8,55
13 Gaumur frá Dalsholti / Guðmundur Björgvinsson 8,55
14 Klerkur frá Bjarnanesi 1 / Eyjólfur Þorsteinsson 8,54
15 Eldjárn frá Tjaldhólum / Halldór Guðjónsson 8,52
16 Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu / Anna S. Valdemarsdóttir 8,51
17 Möller frá Blesastöðum 1A / Helga Una Björnsdóttir 8,50
18 Sleipnir frá Kverná / Jóhann Kristinn Ragnarsson 8,50
19 Stígandi frá Stóra-Hofi / Ólafur Ásgeirsson 8,47
20 Njáll frá Friðheimum / Hinrik Bragason 8,47
21 Jódís frá Ferjubakka 3 / Hulda Finnsdóttir 8,46
22 Klængur frá Skálakoti / Vignir Siggeirsson 8,42
23 Lukka frá Kálfsstöðum / Mette Mannseth 8,41
24 Bliki annar frá Strönd / Lena Zielinski 8,39
25 Dalur frá Háleggsstöðum / Barbara Wenzl 8,36
26 Dögg frá Steinnesi / Ólafur Ásgeirsson 8,34
27 Sóllilja frá Álfhólum / Sara Ástþórsdóttir 8,31
28 Dáti frá Hrappsstöðum / John Sigurjónsson 8,04
29-30 Frakkur frá Laugavöllum / Berglind Ragnarsdóttir 0,00
29-30 Krít frá Miðhjáleigu / Leó Geir Arnarson 0,00
________________________________________
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH