Niðurstöður WR Suðurlandsmót 2021

  • 22. ágúst 2021
  • Fréttir

Sara Sigurbjörnsdóttir átti góðu gengi að fagna á Suðurlandsmóti.

Feikna sterku WR Suðurlandsmóti 2021 sem haldið var á Rangárbökkum við Hellu er nú lokið. Mótið tókst frábærlega vel, yfir 300 hundruð skráningar voru og þétt dagskrá. Tímasetningar stóðust gríðarlega vel og gekk mótið mjög vel.

Við viljum þakka knöpum fyrir stundvísi sem hjálpaði við að öll dagskrá gekk eins og lagt var upp með.

Skeiðfélaginu viljum við þakka samstarfið.

Öllum sjálboðaliðum viljum við þakka fyrir hjálpina.

Dómurum og öðrum sem lögðu hönd á plóg þökkum við kærlega við samstarfið um helgina.

Allar niðurstöður má finna inná kappa-appinu.

Takk fyrir okkur

mótanefnd Geysis.

nst_allt_motid_IS2021GEY019_WR Suðurlandsmót

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link