Níræður höfðingi á mesta gæðinginn
Í uppsveitum Árnessýslu er rekin hestamiðstöð á bænum Hrosshaga. Þar var gróðurhúsi breytt í forláta hesthús, aðstaða gerð upp fyrir reksturinn og ábúendur á jörðinni nú eru heimasætan Þórey Helgadóttir og eiginmaður hennar, reiðkennarinn Sólon Morthens. Eins og væri hann að tala um börnin sín vill Sólon helst ekki gera upp á milli hestanna í húsinu, hann segir þá hvern og einn hafa sinn sérstaka persónuleika og gæði í hæfileikum.
„Öll eru hrossin mjög skemmtileg og spennandi, hvert á sinn hátt. Að öðrum ólöstuðum er þó óhætt að nefna þann sem mestar vonir eru bundnar við í húsinu en það er Svali frá Tjörn, sonur Hnokka frá Fellskoti. Svali er draugmoldóttur, feiknalega skemmtilegur alhliða hestur. Þetta er alvöru klár og hefur alla burði til að vera með efstu hestum á Landsmóti ef allt gengur upp. Hann hefur sótt í sig veðrið á árinu, geðgóður, auðveldur með mikinn fótaburð. Eigandi hans er níræður höfðingi, sem fylgist vel með framförum hjá hesti sínum og er unun að fylgjast með sambandi þeirra. Þá er ég með eitt hágengasta tryppi sem ég hef kynnst, graðhest undan Álfssyni sem féll í fyrra en hann er ekki enn fær um að valda sínum miklu hreyfingum og spurningamerki hvort hann er tilbúinn eða hvort beðið verður með hann til næsta árs. Um aðra upprennandi gæðinga vil ég ekki tala fyrr en seinna.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH