Nokkrar 9,5 hafa litið dagsins ljós

  • 1. júní 2022
  • Fréttir

Álfamær frá Prestsbæ, knapi Árni Björn Pálsson. Mynd: Nicki Pfau

Vorsýning á Gaddstaðaflötum á Hellu, vika 2

Vika tvö á Hellu er rúmlega hálfnuð en yfirlit er á laugardaginn. Eins og áður hefur komið fram eru dómarar þau Elsa Albertsdóttir, Elisabeth Jansen og Gísli Guðjónsson en 192 hross eru skráð á sýninguna.

Tvær 10 hafa litið dagsins ljós í sköpulagsdómum en Skýssonurinn, Grettir frá Ásbrú, hlaut 10 fyrir prúðleika og glæsihryssan Valdís frá Auðsholtshjáleigu 10 fyrir höfuð.

Efst á sýningunni er Álfamær frá Prestsbæ en hún er 7 vetra undan Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ. Fyrir hæfileika hlaut hún 8,95 og fyrir sköpulag 8,59 sem gerir 8,82 í aðaleinkunn. Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi hryssuna.

Nokkrar 9,5 hafa verið gefnar fyrir einstaka eiginleika í hæfileikum. Álfamær hlaut 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja. Ómsdóttirin Kastanía frá Kvistum hlaut 9,5 fyrir tölt, samstarfsvilja og hægt tölt og Herkúlesardóttirin Þyrnirós frá Ragnheiðarstöðum hlaut 9,5 fyrir fegurð í reið.

Þegar rennt er yfir dómaskrána er áberandi að í flokki 5 vetra hryssna standa þar efstar fjórar hryssur allar frá Fákshólum. Hildur frá Fákshólum er efst í flokknum með 8,45 í aðaleinkunn en hún er undan Ölni frá Akranesi og Gnýpu frá Leirulæk, sýnd af Helgu Unu Björnsdóttur. Önnur er Hrönn frá Fákshólum með 8,37 í aðaleinkunn undan Kiljani frá Steinnesi og Adömu frá Búrfelli, sýnd af Jakobi Svavari Sigurðssyni. Þriðja er Hrefna undan Hraunari frá Hrossahaga og Gloríu frá Skúfslæk en hún hlaut 8,24 í aðaleinkunn, klárhryssa. Jakob sýndi hana líka og Hryðju frá Fákshólum sem er fjórða með 8,20 í aðaleinkunn, klárhryssa. Hryðja er undan Ský frá Skálakoti og Mirru frá Þúfu í Landeyjum.

 

Hross sem hlotið hafa fullnaðardóm á sýningunni

Hross á þessu móti S. H. Ae. Sýnandi
IS2015201167 Álfamær frá Prestsbæ 8.59 8.95 8.82 Árni Björn Pálsson
IS2015181912 Gandi frá Rauðalæk 8.84 8.49 8.62 Guðmundur Friðrik Björgvinsson
IS2016287051 Valdís frá Auðsholtshjáleigu 8.55 8.63 8.60 Árni Björn Pálsson
IS2015281962 Kastanía frá Kvistum 8.11 8.8 8.56 Árni Björn Pálsson
IS2017281420 Hildur frá Fákshólum 8.67 8.32 8.45 Helga Una Björnsdóttir
IS2015282570 Þyrnirós frá Ragnheiðarstöðum 8.81 8.25 8.45 Jakob Svavar Sigurðsson
IS2014201001 Kná frá Korpu 8.53 8.35 8.41 Árni Björn Pálsson
IS2017186936 Geisli frá Árbæ 8.66 8.26 8.40 Árni Björn Pálsson
IS2015186182 Kraftur frá Eystra-Fróðholti 8.39 8.38 8.38 Árni Björn Pálsson
IS2016184553 Sóli frá Þúfu í Landeyjum 8.55 8.29 8.38 Guðmundur Friðrik Björgvinsson
IS2017281424 Hrönn frá Fákshólum 8.37 8.37 8.37 Jakob Svavar Sigurðsson
IS2017184162 Kór frá Skálakoti 8.54 8.18 8.31 Jakob Svavar Sigurðsson
IS2016156955 Stæll frá Skagaströnd 8.13 8.38 8.29 Teitur Árnason
IS2016158976 Frami frá Hjarðarholti 8.24 8.29 8.27 Þorgeir Ólafsson
IS2017138944 Dreyri frá Blönduhlíð 8.13 8.35 8.27 Hlynur Guðmundsson
IS2016286166 Aría frá Vindási 8.04 8.35 8.24 Hans Þór Hilmarsson
IS2017281422 Hrefna frá Fákshólum 8.28 8.22 8.24 Jakob Svavar Sigurðsson
IS2016285260 Gná frá Þykkvabæ I 8.27 8.22 8.24 Helga Una Björnsdóttir
IS2017156275 Hugur frá Hólabaki 8.43 8.11 8.22 Steingrímur Sigurðsson
IS2017281419 Hryðja frá Fákshólum 8.42 8.08 8.20 Jakob Svavar Sigurðsson
IS2016284171 Þrá frá Fornusöndum 8.06 8.22 8.16 Elvar Þormarsson
IS2018182122 Steinn frá Stíghúsi 8.31 8.04 8.14 Þorgeir Ólafsson
IS2018184995 Aspar frá Hjarðartúni 8.18 8.11 8.13 Þorgeir Ólafsson
IS2018135715 Hrafn frá Oddsstöðum I 8.56 7.9 8.13 Jakob Svavar Sigurðsson
IS2016188372 Kjalar frá Hvammi I 8.24 8.06 8.13 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
IS2017187902 Glampi frá Skeiðháholti 8.49 7.92 8.12 Árni Björn Pálsson
IS2015187025 Eljar frá Gljúfurárholti 8.57 7.88 8.12 Jakob Svavar Sigurðsson
IS2015101554 Draupnir frá Dimmuborg 8.16 8.08 8.11 Benjamín Sandur Ingólfsson
IS2013156955 Skjár frá Skagaströnd 8.48 7.89 8.10 Teitur Árnason
IS2018286901 Villimey frá Feti 8.39 7.94 8.10 Ólafur Andri Guðmundsson
IS2016188447 Kalmann frá Kjóastöðum 3 8.25 7.99 8.08 Þorgeir Ólafsson
IS2018284011 Nótt frá Ytri-Skógum 8.29 7.93 8.06 Hlynur Guðmundsson
IS2017155047 Hringjari frá Efri-Fitjum 8.51 7.79 8.05 Þorgeir Ólafsson
IS2017186006 Lér frá Stóra-Hofi 8.39 7.86 8.05 Guðmundur Friðrik Björgvinsson
IS2018181385 Grettir frá Ásbrú 7.94 8.10 8.04 Þorgeir Ólafsson
IS2015184419 Heiðmundur frá Álfhólum 8.24 7.93 8.04 Sara Ástþórsdóttir
IS2016177157 Þórmundur frá Lækjarbrekku 2 8.19 7.93 8.02 Hlynur Guðmundsson
IS2016287945 Silfra frá Húsatóftum 2a 8.19 7.92 8.01 Árni Björn Pálsson
IS2016284872 Svala frá Hjarðartúni 8.1 7.92 7.99 Hans Þór Hilmarsson
IS2015158856 Bárður frá Sólheimum 8.37 7.76 7.98 Helga Una Björnsdóttir
IS2018184438 Kraftur frá Svanavatni 7.83 8.05 7.98 Hlynur Guðmundsson
IS2015281453 Hrund frá Litlalandi Ásahreppi 7.68 8.13 7.97 Þorgeir Ólafsson
IS2016201702 Gjöf frá Miðakri 8.26 7.78 7.95 Helga Una Björnsdóttir
IS2015286106 Öld frá Kirkjubæ 8.3 7.75 7.94 Hjörvar Ágústsson
IS2014137637 Fróði frá Brautarholti 8.65 7.55 7.93 Hjörvar Ágústsson
IS2013281450 Morgunsól frá Litlalandi Ásahreppi 7.87 7.94 7.92 Þorgeir Ólafsson
IS2016201487 Veig frá Skör 7.9 7.92 7.92 Ásdís Ósk Elvarsdóttir
IS2017180376 Tindur frá Koltursey 8.34 7.68 7.91 Teitur Árnason
IS2017188449 Vigur frá Kjóastöðum 3 8.15 7.78 7.91 Þorgeir Ólafsson
IS2017287108 Nóra frá Stuðlum 8.24 7.73 7.91 Árni Björn Pálsson
IS2015235155 Straumey frá Akranesi 7.94 7.87 7.90 Jakob Svavar Sigurðsson
IS2015286751 Trítla frá Árbæjarhjáleigu II 8.06 7.78 7.88 Árni Björn Pálsson
IS2015286466 Veisla frá Sandhólaferju 7.71 7.97 7.88 Árni Björn Pálsson
IS2018286907 Þula frá Feti 7.91 7.86 7.88 Ólafur Andri Guðmundsson
IS2017287360 Birna frá Langholti II 8.1 7.75 7.88 Helgi Þór Guðjónsson
IS2018186903 Krummi frá Feti 8.25 7.65 7.86 Ólafur Andri Guðmundsson
IS2016201621 Elding frá Hrímnisholti 8.02 7.77 7.86 Benjamín Sandur Ingólfsson
IS2015282771 Kolskör frá Lækjarbakka 2 7.73 7.92 7.86 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
IS2018201286 Hrönn frá Hrafnsvík 8.07 7.72 7.84 Ólafur Andri Guðmundsson
IS2018287106 Sunna frá Stuðlum 7.93 7.75 7.81 Árni Björn Pálsson
IS2015281514 Von frá Sumarliðabæ 2 7.95 7.72 7.80 Árni Björn Pálsson
IS2017236437 Nóta frá Stafholtsveggjum 7.89 7.68 7.75 Þorgeir Ólafsson
IS2018281452 Saga frá Litlalandi Ásahreppi 8.12 7.54 7.74 Þorgeir Ólafsson
IS2016286912 Valka frá Feti 8.23 7.47 7.74 Hlynur Guðmundsson
IS2017235181 Maídís frá Húsafelli 2 7.66 7.74 7.71 Helgi Þór Guðjónsson
IS2015286102 Sól frá Kirkjubæ 7.90 7.60 7.71 Hanna Rún Ingibergsdóttir
IS2016287371 Tíbrá frá Brúnastöðum 2 7.89 7.60 7.70 Árni Björn Pálsson
IS2018125010 Sólon frá Ljósalandi í Kjós 8.36 7.32 7.69 Hlynur Guðmundsson
IS2017187106 Hreimur frá Stuðlum 8.09 7.43 7.66 Hlynur Guðmundsson
IS2016182712 Ýmir frá Selfossi 8.14 7.32 7.61 Árni Björn Pálsson
IS2016255572 Gjálp frá Bessastöðum 7.82 7.48 7.60 Hlynur Guðmundsson
IS2016256291 Erla frá Steinnesi 7.72 7.52 7.59 Hans Þór Hilmarsson
IS2016286756 Skvísa frá Árbæjarhjáleigu II 7.74 7.52 7.59 Árni Björn Pálsson
IS2016186515 Blakkur frá Áskoti 8.25 6.92 7.39 Þorgeir Ólafsson
IS2018125485 Valíant frá Reykjavík 7.93 6.82 7.21 Hlynur Pálsson

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link