Norðurálsmót Dreyra
Norðurálsmót Dreyra veðrur haldið 22.-23. ágúst 2015. Íþróttamót hestamannafélagsins Dreyra verður haldið í Æðarodda, við Akranes dagana 22.-23. ágúst n.k. Hvenær mótið hefst og nánar um dagskrá verður kynnt þegar skráning liggur fyrir. Upplýsingar verða kynntar á vefmiðlum hestamanna.
Keppnisgreinar:
Fimmgangur í Meistaraflokk, 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokki
Fjórgangur í Meistaraflokk, 1. flokk, 2.flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk
Tölti T3 í 1.flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk
Tölt T2 í Meistaraflokk, 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk
Gæðingaskeið í 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk
100m skeið
Áskilin er réttur til að sameina flokka og fella niður keppnisgreinar ef skráning er lítill í einstak greinum.
Öll skráning fer fram í sportfeng,skránginargjald;fullorðin,ungmenna og unglinga 3500kr og börn 2000kr.
Opna fyrir skráningar verður þann 12. ágúst og lýkur miðnætti 17. ágúst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH