Norðurlandamót í hestaíþróttum

  • 16. maí 2024
  • Tilkynning
Norðurlandamótið í hestaíþróttum hefst eftir tæpa þrjá mánuði.

Mótið stendur yfir dagana 8.-11. ágúst í Herning í Danmörku.

„Þar munum við fá að sjá bestu hesta Norðurlandanna keppa í íþrótta- og gæðingakeppni. Keppnissvæðið í Herning er marglofað og er ekki við öðru að búast en að þar muni hver stórsýningin reka aðra. Þar munum við sjá alla sterkustu hesta Norðurlandanna koma saman en mikill hugur eru í nágrönnum okkar á Norðurlöndunum og mun mótið gefa tóninn fyrir komandi heimsmeistaramót í Sviss á næsta ári,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurun.

Á svæðinu verður markaðstorg, veitingasölur, leikvöllur fyrir börn auk þess er á dagskrá fræðsluerindi, tónlistaratriði og fleira. Miðasala er hafin og fá þeir sem tryggja sér miða í tíma góðann afslátt. Miðinn veitir aðgang að öllu svæðinu fyrir utan hesthúsin. Þeir sem hafa farið á heimsmeistaramót í Herning ættu að þekkja svæðið í kring. Stutt er í ýmsa þjónustu og er Legoland og Lalandia stutt frá.

Hægt er að næla sér í miða HÉR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar