Nú fer hver að verða síðastur
Mikill áhugi er fyrir ljósmyndasamkeppni Eiðfaxa og hafa margar gullfallegar myndir borist inn. Síðasti dagur til að senda inn myndir er föstudagurinn 23. nóvember.
Verðlaunin eru:
1. verðlaun eru vönduð hringamél úr ryðfríu stáli, kopar og sætmálmi úr smiðju Jakobs Lárussonar.
2.-3. verðlaun eru árs áskrift að Eiðfaxa, vefáskrift innifalin.
4.-10. verðlaun eru árs vefáskrift að Eiðfaxa.
Æskilegt er að myndirnar séu amk. 2 mb. að stærð og skulu sendast í jpeg sniði á netfangið [email protected] en mælst er til þess að hver ljósmyndari takmarki fjölda innsendra mynda í fimm ljósmyndir.
Verðlaunamyndir verða birtar í jólablaði Eiðfaxa.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV