Ný hestabraut
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ býður upp á námsbraut í hestamennsku – hestabraut – frá og með hausti 2014 þar sem nemendur geta lokið prófi sem hestasveinn á 1-2 árum. Einnig verður hægt að ljúka stúdentsprófi af kjörsviði hestamennsku á 3-4 árum – opin stúdentsbraut – í framhaldi af hestabrautinni. Læt fylgja með kynningarveggspjald með upplýsingum brautina.
Hvað lærir þú?
- Um búnað og aðstöðu hesta
- Þjálfun hesta
- Gangtegundir hesta
- Líkama og atferli hesta
- Fimiæfingar hesta
- Almennt bóklegt nám
- og margt fleira
Hvað verður þú?
- Hestasveinn (3 – 4 annir)
- Stúdent með áherslu á hestamennsku og hestaíþróttir (6 – 7 annir)
Hvað svo?
- Undirbúningur fyrir háskólanám.
- Undirbúningur fyrir störf í hestatengdri starfsemi.
- Getur leiðbeint um grunnþætti hestamennsku og aðstoðað við þjálfun hesta.
Á kjörsviði hestamennsku og hestaíþrótta eru bóklegir áfangar, verklegir áfangar og vinnustaðanám. Vinnustaðanámið fer fram á hestabúgarði sem skólinn hefur samning við. Nemendur greiða sérstakt gjald vegna verklegrar kennslu á brautinni, 60.000 kr. á önn. Einnig er nauðsynlegt að nemendur hafi hest til umráða.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH