Ný og glæsileg kerra í Árbæjarhjáleigu

  • 10. júní 2013
  • Fréttir
Ný og glæsileg kerra í Árbæjarhjáleigu

Fjölskyldan í Árbæjarhjáleigu II, þau Kristinn Guðnason og Marjolijn Tiepen, ásamt dætrum sínum Heklu Katharínu og Rakel Nathalie, fengu sér einkar glæsilega hestakerru nú á dögunum.

Það er heilmynd sem prýðir kerruna báðum megin og myndin er af engum öðrum en sjálfum Kristni Guðnasyni sem ætíð hefur verið kenndur við Skarð í Landsveit. Þar fer hann yfir Ytri-Rangá með kind í eftirdragi, við leitir í Landmannaafrétti. Ásamt því að vera ötull hrossaræktandi um árabil þá hefur Kristinn ætíð stundað sauðfjárbúskap samhliða hrossaræktinni. Kristinn hefur lengi verið fjallkóngur í Landmannaafrétti og er enn. Myndin er því vel við hæfi sem andlit Árbæjarhjáleigu II, þar sem bæði hross og sauðfé skipa stóran sess.

Myndina tók Ragnar Axelsson og var hún birt á ljósmyndasýningu hans, sem og í samnefndri bók, Andlit norðursins, sem haldin var á Austurvelli árið 2005.

 

[email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link