Ný regla vegna tilnefningar um ræktunarbú ársins

  • 19. apríl 2023
  • Fréttir

Búgreinadeild hrossabænda Bændasamtaka Íslands vill koma á framfæri að á Búgreinaþingi hrossabænda 2023 var samþykkt að forsenda tilnefningar til ræktunarbús ársins miðist við fulla félagsaðild í Bændasamtökunum fyrir 1. maí ár hvert.

Ekki er gerður greinarmunur á hvort ræktandi sé persóna eða skráð kennitala fyrirtækis. Aðrar forsendur fyrir tilnefningu eru óbreyttar.

 

www.rml.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link