Nýjungar í Worldfeng þetta árið

  • 11. júní 2013
  • Fréttir
Nýjungar í Worldfeng þetta árið

Sífellt er verið að þróa WorldFeng sem skilar sér til notenda með auknum möguleikum til að fá fram upplýsingar úr ættbók íslenska hestsins, eða fyrir áskrifendur og skrásetjara WorldFengs til að bæta við upplýsingum.

Hér á eftir verða talin upp nokkur verkefni sem er lokið:

– Skráningarkerfi fyrir kynbótasýningar og íþróttasýningar (SportFengur) opnaði, þar sem hross eru skráð rafrænt á netinu inn í sýningar gegn greiðslu sýningargjalds með greiðslukorti.

– WorldFengur leyfir áskrifendum að vera innskráða lengur en áður, eða allt að 2 klst. í einni lotu.

– Vefþjónusta við WF fyrir Íslandshestafélagið í Bandaríkjunum til að WorldFengur taki yfir ættbókarforrit þeirra að öllu leyti.

– Endurbætur á DNA verkefninu innan WF

– Mikið endurbætt ársskýrsla fyrir aðildarfélög innan FEIF sem gefur yfirlit yfir skráningu hvers félags.

– Bætt við fyrir öll aðildarlönd FEIF staðlaðri áverkaskráningu vegna hrossa á kynbótasýningum, segir í frétt á heimasíðu Worldfengs

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link