Nýr Eiðfaxi
Nýtt tölublað Eiðfaxa er komið út í vefútgáfu. Í þessu 7. tölublaði ársins kennir ýmissa grasa.
Fjörugar umræður fóru fram á Landsþingi LH sem haldið var á Reykjavík Hótel Natura þann 19. og 20. október sl. Eiðfaxi fylgdist með hestamönnum á rökstólum og eru helstu hitamál þingsins krufin í blaðinu. Gunnar Steinn Pálsson ritar grein sem varpar skýru ljósi á innihald erindis er hann hélt á þinginu.
Þá er Kristbjörgu Eyvindsdóttur er heitt í hamsi þegar hún spyr hvort hrossaræktin sé á réttri leið. Þar kallar hún eftir viðhorfsbreytingum forsvarsmanna greinarinnar, endurskoðun dómkerfis og siðareglum meðal dómara.
Allt stefnir í stöðnun á rannsóknum á sumarexemi vegna fjárskorts. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir og Vilhjálmur Svansson rita grein um rannsóknina en sumarexem hamlar markaðssetningu og útflutning á íslenskum hrossum frá Íslandi.
Nafn hrossaræktarstöðvarinnar Sunnaholts hefur borið oft á góma hestamanna undanfarið ár. Hross í eigu þess hafa vakið eftirtekt á sýningum og mótum og fréttir af kaupum Sunnaholts á fleiri hrossum hafa ratað í ljósvakamiðla. Færri þekkja til fólksins að baki nafninu en hjónin Steffan og Angelika Langaard eru í einlægu viðtali í Eiðfaxa.
Nú er tími frumtamninga og Gísli Gíslason á Þúfum ræðir ferli fortamninga og aðferðir við frumtamningar í blaðinu.
Í ár uppfylla níu hryssur lágmörk til heiðursverðlauna og eru þar á meðal mæður verðlaunaðra kynbótahrossa, sigursælla keppnishesta og vinsælla stóðhesta. Í blaðinu er umfjöllun um heiðursverðlaunahryssurnar 2012 og prýðir Glettubikarhafinn Þoka frá Hólum forsíðu blaðsins að þessu sinni. Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir myndaði drottninguna í Skagafirði á haustdögum ásamt folaldinu Þökk frá Hólum.
Áskrifendur Eiðfaxa geta nú nálgast sjöunda tölublaðið í vefútgáfunni hér.
Þeir áskrifendur sem hafa ekki enn opnað fyrir sinn aðgang að rafræna blaðinu geta gert það hér. Þegar skráningu er lokið eru áskrifendur beðnir um að senda notendanafnið á netfangið [email protected]. Þá munum við opna fyrir aðgang að vefútgáfunni.
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa í gegnum síma 588-2525.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH