Nýr landsliðsþjálfari U-21
Hekla Katharína Kristinsdóttir hefur verið ráðin landsliðsþjálfari U21-landsliðshóps LH frá 1. janúar 2020.
Hekla útskrifaðist sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum árið 2012 og starfar við þjálfun og reiðkennslu á Árbæjarhjáleigu í Rangárþingi ytra. Hekla hefur átt farsælan keppnisferil frá barnsaldri og er virkur dómari hjá GDLH.
Arnar Bjarki Sigurðsson fráfarandi U-21 landsliðsþjálfari tekur við starfi aðstoðarþjálfara A-landsliðs frá áramótum.
LH býður Heklu velkomna til starfa og Arnar Bjarka velkominn til áframhaldandi starfa við landsliðsteymi LH.
Á myndinni má sjá Kristinn Skúlason, formann landsliðnefndar, og Heklu Katharínu við undirskrift starfssamnings fyrr í dag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH