Nýr Landsmótssigurvegari í A-flokk
Það er orðið ljóst að nýr sigurvegari í A-flokk verður krýndur á sunnudaginn. Hrannar frá Flugumýri, sigurvegari LM2016, lá ekki í forkeppninni og er úr leik. Hrafn frá Efri-Rauðalæk lá ekki heldur og er einnig úr leik.
A-flokkurinn er mjög sterkur á þessu móti og örfáar kommur sem skilja að efstu sætin. Sjóður er ennþá efstur, Kolskeggur annar og Hrafnar frá Auðholtshjáleigu hefur skotið sér uppí þriðja sætið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Opið fyrir umsóknir í Áhugamannadeild Norðurlands