Nýtt hestamannafélag

  • 2. október 2012
  • Fréttir
Nýtt hestamannafélag

Nýtt hestamannafélag, Hestamannafélagið Kjóavöllum, hefur tekið til starfa á samnefndu svæði, þar sem Andvari og Gustur hafa aðstöðu. Tekur hið nýja félagið yfir alla starfssemi félaganna og eignir. Má reikna með að félagsmenn verði um þúsund og þar með verður það næst fjölmennasta hestamannafélagið á landinu. 

 
Í stjórn félagsins, fram að formlegum stofnfundi sem verður haldinn í nóvember, sitja fulltrúar Andvara og Gusts. Samkvæmt upplýsingum Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, formanns stjórnar, er jarðvinna hafin á vegum félagsins á svæðinu og er stefnt að því að tveir nýjir vellir verði tilbúnir til notkunar síðar í haust, auk þess sem nýtt tamningagerði hafi þegar verið byggt. Þá sé ráðgert að reisa glæsilega reiðhöll sem á að vera tilbúin til notkunar haustið 2013 og hefur verið auglýst eftir tilboðum í byggingu hennar. Tilboð verða opnuð 5. október nk. og mun þá í framhaldi skýrast hvernig hús félagið mun byggja.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link