Nýtt hjá Íshestum!
Í tilefni af 10 ára afmæli hestamiðstöðvarinnar var ákveðið (auk afmælishófs á sumardaginn fyrsta) að taka öryggis og kennslumál til nánari skoðunnar…
Af því tilefni létum við útbúa 5 mínútna kennslumyndband um reiðmennsku á íslenskum hestum. Allir farþegar sem koma í hestamiðstöðina og fara í dagsferðir horfa á myndbandið áður en farið er í útreiðartúr og má sjá mikinn mun á reiðlagi gesta eftir að myndbandið var tekið í notkun. Flestir okkar gesta sem bóka stuttar dagsferðir hafa jafnvel aldrei farið á hestbak áður og finna því til öryggis eftir að hafa séð hversu auðvelt það er að stjórna íslenska hestinum. Hjá Íshestum má finna hesta við allra hæfi en öryggið er ávallt haft að leiðarljósi.
Við erum mjög stolt af þessu myndbandi og teljum að það sé fyrsta sinnar tegundar, gert með erlenda ferðamenn í huga. Steingrímur Karlsson (fararstjóri hjá Íshestum) útbjó myndbandið og Svandís Dóra Einarsdóttir (einnig fararstjóri hjá Íshestum) er í hlutverki kennarans. Hesturinn Garpur og knapinn Margrét leika einnig stórt hlutverk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH