Nýtt kynbótamat komið
Skýr frá Skálakoti hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 2020
Búið er að reikna út nýtt kynbótamat í WorldFeng en í síðustu viku var gefið út að uppfæra ætti kynbótamatið og leiðrétting fyrir landi yrði tekin út. Hægt er að lesa nánar um þetta HÉR
Margir ræktendur gleðjast í dag og þá aðallega hérlendis en þetta hafði mikil áhrif á kynbótamat hesta hér á landi sem flestir hækkuðu.
Af þeim afkvæmahestum sem hafa gefið 15 afkvæmi eða fleiri stendur efstur Skýr frá Skálakoti með 134 stig, annar er Spuni frá Vesturkoti með 130 stig og þriðji er Kiljan frá Steinnesi með 127 stig. Hér fyrir neðan er hægt að sjá 10 efstu stóðhestana í kynbótamati sem eiga fleiri en 15 sýnd afkvæmi.
Gott er að hafa í huga þegar kynbótamatið er skoðað að þetta er spá um kynbótagildi hrossa og því þarft að hafa öryggið til hliðsjónar því eftir því sem öryggið er meira því hærra verður forspárgildi kynbótamatsins.
| Fæðingarnúmer | Nafn | BLUP | Öryggi | Fj.skráðra afkv. | Fj. afkv. m. fullnaðardóm |
| IS2007184162 | Skýr frá Skálakoti | 134 | 97% | 505 | 77 |
| IS2006187114 | Spuni frá Vesturkoti | 130 | 98% | 541 | 154 |
| IS2004156286 | Kiljan frá Steinnesi | 127 | 97% | 378 | 81 |
| IS2007186104 | Sjóður frá Kirkjubæ | 126 | 96% | 290 | 50 |
| IS2005135936 | Trymbill frá Stóra-Ási | 125 | 95% | 314 | 42 |
| IS2010182570 | Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 125 | 93% | 220 | 24 |
| IS2009101044 | Skaginn frá Skipaskaga | 125 | 92% | 275 | 21 |
| IS2007186992 | Jarl frá Árbæjarhjáleigu II | 124 | 95% | 247 | 39 |
| IS2007166206 | Eldur frá Torfunesi | 124 | 95% | 226 | 44 |
| IS2006158620 | Hrannar frá Flugumýri II | 123 | 97% | 391 | 68 |
| IS2010156107 | Konsert frá Hofi | 123 | 96% | 343 | 66 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH