Nýtt kynbótamat væntanlegt

  • 11. nóvember 2021
  • Fréttir

Álfamær frá Prestsbæ er með hæsta kynbótamatið eins og stendur eða 137 stig, hún deilir efsta sætinu með systir sinni Skiptingu frá Prestsbæ. Móðir þeirra beggja er Þóra frá Prestsbæ en faðir Álfameyjar er Spuni frá Vesturkoti og faðir Skiptingar er Hrannar frá Flugumýri.

Vinsælasta spurning vikunnar

Eiðfaxa hefur borist margar fyrirspurnir varðandi það hvenær nýtt kynbótamat verði reiknað. Það er kannski ekki skrítið þar sem ekki hefur verið reiknað kynbótamat síðan í október á síðasta ári en aðdáendur BLUPsins vita að það er vanalega reiknað tvisvar á ári, á vori og hausti.

Ræktendur þurfa þó ekki að örvænta mikið lengur en nýja kynbótamatið ætti að birtast á WorldFeng á næstu dögum en þetta staðfesti Elsa Albertsdóttir, ræktunarleiðtogi íslenska hestsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link