Nýtt umhverfi íslensks hestasamfélags með HorseDay smáforritinu
Á lokaviðburði Meistaradeildar í hestaíþróttum kynnir sprotafyrirtækið HorseDay samnefnt smáforrit sem ætlað er að verða miðpunktur samfélagsins um íslenska hestinn. Með forritinu fæst mikilvæg yfirsýn yfir þjálfun hestsins og umhirðu auk þess sem það býður upp á beina tengingu við WorldFeng og GPS skráningu á hestaferðum líkt og þekkist innan tómstunda með forritinu Strava.
Hugmyndin að HorseDay fæddist í hesthúsi þar sem hestafólk er vant að halda utan um skráningu á daglegum atburðum hestanna á tússtöflum, þar með talið hreyfingu, þjálfun, járningar, tannhirðu, lyfjagjöf, fóðrun og fleira. Vaninn í hesthúsunum er hins vegar sá að upplýsingarnar eru svo þurrkaðar af töflunum og þar með tapast mikilvæg yfirsýn, og innsýn, í umsjón og umhirðu hestsins en gögnin sem safnast yfir ævi hestsins eru gríðarlega verðmæt fyrir eigendur.
“Um allan heim er mikil ástríða fyrir íslenska hestinum og við áttuðum okkur á því þarna að við gætum gert hestafólki kleift að gera hlutina rétt og vel en hafa jafnframt velferð hestsins að leiðarljósi,” segir Ólafur H. Einarsson hestaræktandi og einn stofnenda HorseDay. Við hrintum þessu verkefni af stað með aðstoð sonar míns, Odds, sem yfirgaf gott starf í bankageiranum til að taka við sem framkvæmdastjóri HorseDay. Okkur hefur tekist að búa til nýjung sem leysir þarfir hestaeigenda með skemmtilegum og hagnýtum hætti. Við sem stöndum að þróun hugbúnaðins erum hestafólk, reiðmenn, ræktendur, bæði áhugamenn og atvinnufólk úr geiranum, sem sá að þessa lausn vantaði.”
Gangtegundagreining HorseDay áhugaverð fyrir eigendur íslenskra hesta
Smáforritið er þannig uppsett að hesturinn er ávallt í fyrsta sæti. HorseDay er beintengt við gagnagrunn WorldFengs þar sem íslenskir hestar um allan heim eru skráðir. Þegar prófíll er stofnaður fyrir hest eru upplýsingar um hann sóttar beint í WorldFeng sem er einstakt og tryggir gæði skráningar.
Oddur Ólafsson, framkvæmdastjóri HorseDay segir, „við ætlum að verða leiðandi smáforritið fyrir íslenska hesta á Íslandi en líka á heimsvísu. Við höfum nú náð vissum áfanga í þróuninni og fannst tímabært að kynna smáforritið fyrir markaðnum jafnvel þótt við séum langt frá því að vera komin á leiðarenda. Nokkuð stór hópur er þegar byrjaður að nota HorseDay og notkun eykst stöðugt sem færir okkur nær markmiðum okkar um að verða miðpunktur samfélagsins um íslenska hestinn.“
„Við sjáum fjölda tækifæra í því að bæta virkni forritsins og upplifun notenda enn frekar og framundan eru margar frekari viðbætur í þróun hjá okkur. Þar nefnir Oddur fyrst og fremst gangtegundagreiningu, en HorseDay verður fyrsta smáforritið sem getur greint allar gangtegundir íslenska hestsins án aukabúnaðar.
Oddur segir að það séu mikil tækifæri á heimsvísu fólgin í því að hafa leyst tæknilega útfærslu gangtegundagreiningar með smáforriti HorseDay en mismunandi gangtegundir íslenska hestsins og notkun þeirra fái algjörlega nýja vídd með stafrænni skráningu, nokkuð sem verði mjög áhugavert fyrir eigendur að deila innan og utan samfélagsins.
„Við teljum að þetta verði mikil bylting fyrir hestaheiminn en þetta er líka áhugavert fyrir vísindasamfélagið enda hefur Háskólinn á Hólum tekið þátt í þróuninni og Háskóli Íslands ritrýnir komandi greinar sem varða gangtegundagreininguna,“ segir Oddur.
HorseDay er þegar fáanlegt í App Store og Google Play og kostar mánaðarleg áskrift aðeins 15.99 USD en hægt er að kaupa fyrir fram áskrift til 12 mánaða en þá fæst mánuðurinn á 9.60 USD. HorseDay er eina smáforritið á markaðnum sem mun bjóða greiningu allra gangtegunda og tengingu við WorldFeng.
HorseDay hefur notið styrkja frá Tækniþróunarsjóði, Stofnverndarsjóði íslenska hestakynsins og Uppbyggingarsjóði Suðurlands.
Hönnunarskrifstofann Metall kom að hönnun og flæði smáforritisins ásamt hönnun vörumerkisins og framsetningu þess og hugbúnaðarfyrirtækið REON kom að forritun og þróun hugbúnaðarins.
Hér má hala niður smáforritinu: www.horseday.com
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH