Óbreytt dagskrá Kynbótasýninga

  • 16. apríl 2020
  • Fréttir

Stefnt er að því að halda allar kynbótasýningar hrossa sem eru á áætlun í vor og sumar. Rétt er að taka þetta fram á þessum óvissutímum.

Þó þarf að hafa það í huga að takmarkanir þær sem verða í vor vegna Covid-faraldursins gætu haft einhver áhrif á framkvæmd sýninganna. Verður látið vita af því um leið og hægt er.

Brugðist verður við hugsanlegra breyttri eftirspurn á einstakar sýningar vegna þessara sérstöku tíma eftir bestu getu.

Sýningaráætlunin má finna inn á vef RML, rml.is. Opnað verður á skráningu á kynbótasýningarnar um mánaðarmótin apríl/maí og nánar verður þá tilkynnt um skráningarfresti á einstakar sýningar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar