Of mikill hraði og spenna

  • 19. janúar 2011
  • Fréttir

Jens Iversen

Of mikill hraði og spenna

Jens Iversen formaður FEIF lýsir yfir áhyggjum vegna þess hraða og spennu sem er farinn að einkenna hestaíþróttirnar…

Nefndi hann sem dæmi úrslit í Tölt T1 og sagði síðasta hluta þeirrar keppni minna mest á kappreiðar, slíkur væri hraðinn. Finnst honum miður að hvergi í töltkeppninni skuli hestinum vera leyft að njóta sín á þeim hraða sem hentaði honum og gangtegundinni best. Á hæga töltinu væri riðið það hægt að það væri farið að þvinga hestinn og á í hraðabreytingum og á greiða töltinu væri hraðinn orðinn slíkur að fegurðin væri horfin.
Jens sagði einnig frá upplifun sinni á „World Cup“ mótinu í Danmörku á síðasta ári er tónlistin var svo kraftmikil, hröð og hávær að sýningarnar hefðu kafnað undir henni. Þetta væri ekki rétta andrúmsloftið er menn væru komnir til að sjá fallega reiðmennsku á góðum hestum.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link