Ógild úrslit í 150m skeiði?

  • 23. mars 2013
  • Fréttir
Ógild úrslit í 150m skeiði?

Rætt er um hvort úrslit 150m skeiðs Meistaradeildarinnar sem fram fóru í dag séu í raun ógild.

Ekki liggur alveg ljóst fyrir eftir hvaða reglum fara skal eftir en samkvæmt Lögum og reglugerðum um keppni á vegum LH sem finna má á vefnum lhhestar.is segir:

8.7.6.7 Knapar

Unnt þarf að vera að þekkja knapa auðveldlega í sundur.

Virk fóthvatning er leyfð í kappreiðunum. Allar hvatningar sem truflað geta aðra

þátttakendur í sprettinum eru bannaðar. Trufli knapi annan eða aðra knapa í spretti,

telst tími hans ekki gildur. Hestar í næsta riðli skulu standa a.m.k. 30 metrum fyrir aftan

marklínu.

Yfirdómari getur leyft hesti sem orðið hefur fyrir truflun að hlaupa aftur einum, sé farið

fram á slíkt.

Í kappreiðunum í dag kom fram kvörtun frá Hinriki Bragasyni um að hann hafi orðið fyrir truflun frá Eyjólfi Þorsteinssyni og var það niðurstaða yfirdómara að leyfa Hinriki að fara annan sprett. Ef fara skal eftir fyrrnefndum reglum segir jafnframt að tími þess sem að olli truflunin sé því ógildur.

Sigurtími Eyjólfs og Veru var úr þessum spretti en Vera lá ekki í seinni sprettinum.

Í sumum tilfellum er farið eftir FIBO reglum sem kveða ekki eins skýrt á um þetta eins og Lög og reglugerðir um keppni á vegum LH , en einnig eru til sérreglur fyrir Meistaradeildanna.

Spurningin er því sú: Eftir hvaða reglum skal farið og hver á að sjá til þess að þeim sé framfylgt ?

[email protected]

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link