Olil Amble ráðgjafi þýska landsliðshópsins
Þýska íslenska hesta landsambandið IPZV hefur fengið Olil Amble inn sem ráðgjafa inn í hóp þýska landsliðið. Isibless greinir frá þessu en þar segir; “Þýska íslenska hestasambandið styrkir sig fyrir voræfingar hjá landsliðinu með margföldum innlendum og alþjóðlegum titilhafa, Olil Amble.” Olil mun mæta á æfingu hjá liðinu nú í mars sem fer fram á Gestüt Federath.
Samkvæmt Isibless var Olil Amble ekki ráðin inn sem nýr þjálfari heldur kemur hún inn sem ráðgjafi og vonast IPZV eftir fersku sjónarhorni. Samkvæmt greininni kemur Olil inn með óhlutdrægni og mikla þekkingu tengda nútíma keppnisíþróttum á hæsta stigi og geti gert dýrmætar fínstillingar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH