Ómetanleg aðstoð-

  • 15. nóvember 2010
  • Fréttir
Ómetanleg aðstoð-

Félagar í hestamannafélaginu Herði eru heldur betur að hlaupa undir bagga með fólki sem missti hesthúsin sín í bruna í síðustu viku…

Um helgina lét hópur fólks hendur standa fram úr ermum og er búið að rífa niður rústirnar og hreinsa til á svæðinu, þannig að nú getur uppbygging hafist.
Eiðfaxi hitti Svein Inga Grímsson en hann er eigandi annarrar einingarinnar sem brann.
Hvernig er tryggingarmálum háttað er spurt?
„Matið á hesthúsum hér er svo lágt að það er langt undir raunverðmætum húsanna. Menn eru ekki nógu vakandi fyrir því að láta endurmeta byggingarnar jafnvel þótt þeir séu í stórfelldum endurbætum. Ég var nýbúinn að taka hesthúsið mitt í gegn, setti plastborð í allar milligerðir og klæðningar, innréttaði í sumar kaffistofu uppi á loftinu, allt panilklætt og til dæmis nýr hitakútur“.
Heldurðu að margir séu með einhverskonar viðvörunarkerfi í hesthúsum sínum?
„Nei það held ég ekki. Það hlýtur þó að vera að margir hugsi um það nú. Maður sefur ekki vel án þess tel ég“.
Nú ætla félagar þínir í Herði að aðstoða ykkur eitthvað við endurbygginguna. Hvernig er því háttað?
„.Það er ómetanleg aðstoð sem þetta fólk ætlar og er að veita. Bæði ætlar hópur fólks að vinna fyrir okkur í sjálfboðavinnu og svo er verið að safna fyrir okkur peningum á einhvern reikning. Það er ómetanlegt og maður er fullur þakklætis.
Hrossin þín björguðust þó. Komust þau heil frá þessu?
Já svo virðist vera. Dýralæknir skoðaði þau og gaf tveimur þeirra lyf, en nú virðast öll vera spræk og í lagi.
Eiðfaxi mun fylgjast með framvindu mála í Mosfellsbænum.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link