Opið æfingamót í gæðingalist

  • 15. mars 2023
  • Fréttir
Hestamannafélagið Sprettur býður upp á opið æfingamót í gæðingalist

Haldið verður opið æfingamót í gæðingalist laugardaginn 18. mars nk. í Samskipahöllinni í Spretti. Stefnt er að byrja keppni um kl.14:30 eða 15:00 á laugardegi, fer eftir fjölda skráninga.

Mótið er æfingamót, það verða tveir virkir gæðingalistar dómarar sem gefa einkunnir og umsögn sem keppendur fá svo sent til sín í tölvupósti. Engin úrslit riðin, bara forkeppni.

Hægt er að skrá til keppni á öllum stigum og öllum flokkum. Mótið er opið öllum og er frábært tækifæri til þess að prófa sig áfram í þessari spennandi keppnisgrein.

Skráning fer fram á sportfengur.com og er opin til miðnættis á föstudag. Skráningargjald er 2500kr. Ráslistar og dagskrá birtast á laugardagsmorgun í LH kappa. Áætlað er að keppni hefjist um 14:30 eða 15:00 á laugardag. Nánari upplýsingar á fraedslunefnd@sprettarar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar