Opið er fyrir skráningar á WR íþróttamót Geysis

  • 16. maí 2023
  • Tilkynning
Opið WR Íþróttamót Geysis 2023

Opið WR Íþróttamót Geysis fer fram 26. – 28. maí á Rangárbökkum. Opið verður fyrir skráningar til 21. maí kl. 23:59.

Mótið er opið og leggur mótanefnd Geysis upp með að bjóða upp á sem flesta flokka en komi til þess að ekki náist viðunandi fjöldi í flokka verða þeir felldir niður eða sameinaðir öðrum eftir atvikum. Fyrirspurnir vegna mótsins sendist á hmfgeysir@hmfgeysir.is – fylgist með á www.hmfgeysir.is en þar birtast tilkynningar um mótið.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

  • Nái skráningar ekki 20 í flokki eru eingöngu riðin A-úrslit.
  • Nái skráningar ekki viðunandi fjölda fellur flokkur niður eða verður sameinaður öðrum eftir atvikum.
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 8.500 kr – fullorðinsflokkar og ungmennaflokkur.
  • 5.000 kr – barna- og unglingaflokkur
  • 5.000 kr – 150m, 250m og 100m flugskeið

Greinar og flokkar í boði:

  • T1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
  • T2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
  • T3 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • T4 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • T7 – unglingaflokkur, barnaflokkur, 2. flokkur.
  • V1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
  • V2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • F1 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur
  • F2 – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur, 2. flokkur.
  • P1 – fullorðinsflokkur, ungmennaflokkur
  • P2 – fullorðinsflokkur, ungmennaflokkur
  • P3 – fullorðinsflokkur, ungmennaflokkur
  • PP1 gæðingaskeið – meistaraflokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, 1. flokkur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar