Opið gæðingamót í Sörla næstu helgi

  • 22. ágúst 2020
  • Fréttir
Mótanefnd Sörla vill minna alla á að skrá sig á Gæðingaveisluna sem fram fer dagana 26-29.ágúst. Skráningu hefur verið framlengt til 23.ágúst næstkomandi.
Nýtt í gæðingakeppni er gæðingakeppnisskeið sem boðið verður uppá á mótinu. Til að skrá sig í þenna flokk þarf að velja Gæðingaskeið PP1 meistaraflokkur  í sportfeng enn flokkurinn er opinn öllum. Skráningagjaldið verður 4500 eins og í fullorðinsflokkana.  Fleiri upplýsingar um framkvæmd, einkunnir á greininni og fleira mun verða birt á facebook event mótsins ( WR Gæðingaveisla Sörla 2020 (opið mót)) ásamt fleiri upplýsingum munum við verða birt þar og hvetjum við alla til að melda sig á mótið til að fylgjast með.
Ásamt gæðingakeppnisskeiðinu er gæðingatölt sem einnig er nýtt  í gæðingakeppni og verður einnig hægt að skrá sig í. Dæmt er hægt tölt  og fegurðatölt ásamt því að gefnar eru einkunnir fyrir vilja og fegurð í reið. Til að skrá sig í þessa grein skal valið T1 í sportfeng.
Gæðingatölt Meistarar (T1 opin flokkur)
Gæðingatölt Áhugamenn (T1 2 flokkur)

Gæðingatölt 21 árs og yngri (T1 ungmennaflokkur)
Allar fyrirspurnir skulu berast á [email protected]
Mótanefnd Sörla

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link