Opið gæðingamót Sleipnis.

  • 28. maí 2023
  • Tilkynning

Opið Gæðingamót Sleipnis verður haldið dagana 3 og 4. júní á Brávöllum. Skráning er hafin
og lýkur henni þriðjudaginn 30.maí.

Barnaflokkur – 4000
Unglingaflokkur – 4000
B-flokkur Ungmenna – 5000kr
C-flokkur – 6000
B-flokkur – 6000
A-flokkur – 6000
Gæðingatölt – Unglingar
Gæðingatölt – Fullorðinsflokkur 1 – (Meira vanir)
Gæðingatölt – Fullorðinsflokkur 2 – (Minna vanir)

Efsti Sleipnishestur í A og B flokki hljóta hina glæsilegu Sleipnisskyldi.
Boðið er uppá C-flokk sem hentar vel fyrir minna vana knapa.
„ Knapi og hestur sem keppa í C flokki geta ekki líka keppt í A eða B flokki á sama móti. Ekki skal keppt í C
flokki á Landsmótum. Þessi flokkur er hugsaður fyrir minna vana keppendur. Þessi grein er hringvallargrein.
Pískur er leyfður í þessari grein.
Riðnir skulu tveir hringir og sýnt fet, tölt og/eða brokk og stökk. Sýni keppandi bæði brokk og tölt er einkunn fyrir
betri gangtegundin notuð. Einkunnir skulu gefnar á gæðingaskala frá 5-10, þar sem talan 5 er grunntala og
jafngildir núlli. Einkunnir skal reikna samkvæmt eftirfarandi kvarða „ – Tekið af Lhhestar.is / reglur um
gæðingakeppni.

https://www.sportfengur.com/#/skraning/karfa
motanefnd@sleipnir.is

Hér eru reglur um gæðingakeppni.
https://www.lhhestar.is/static/files/Log_LH/Logogreglur2023/-gk-reglur-um-
gaedingakeppni-_180423.pdf

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar