Opið gæðingamót Smára og Loga
Opið gæðingamót Smára og Loga verður 23-24 júlí 2016 á Flúðum
Keppt verður í A og B flokki gæðinga, ungmenna, unglinga og barnaflokki.
Einnig verður keppt í 100 m flugskeiði með rafrænni tímatöku og öllum flokkum í tölti T3. Mótanefnd áskilur sér rétt að fella niður flokka eða sameina sé þátttaka ekki næg.
Peningaverðlaun í tölti fullorðinna !!
Dagskrá verður birt um leið og skráningu lýkur.
Skráning fer fram á skraning.sportfengur.com og Velja þarf hmf. Smári sem mótshaldara. Skráningu lýkur kl. 23.59 þriðjudaginn 19 júlí. Hvetjum við fólk til að skrá tímalega til að lenda ekki í vandræðum á síðustu stundu.
Ekki verður tekið við skráningum eftir auglýstan skráningarfrest.
Skráningargjöld skal millifæra inn á reikning 325-26-39003 kt 431088-1509 og senda skal kvittun á [email protected]
Skráningargjöld eru:
• 2000 kr fyrir börn og unglinga í alla flokka
• 2500 kr fyrir ungmenni og fullorðna í gæðingakeppni
• 3500 kr fyrir ungmenni og fullorðna í tölt
• 2000 kr í flugskeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH