Opið gæðingamót Spretts

  • 27. maí 2020
  • Fréttir

Opna Gæðingamót Spretts fer fram dagana 5-7 júní 2020
Skráning fer fram á Sportfeng, www.sportfengur.com.
Skráning hefst 20. maí og lýkur 1.júní á miðnætti.

Skráningargjald í gæðingakeppnina er kr 6.000 en fyrir börn og unginga kr 4.000 kr.
Skráningargjald fyrir 100m flugskeið er kr. 4000

Athugið: Skráning fer ekki í gegn fyrr en skráningargjald hefur verið greitt!
ATHUGIÐ: Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Ekki er hægt að bæta við skráningum eftir að ráslistar hafa verið birtir.

Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:

A-flokk gæðinga
A-flokk gæðinga áhugamenn
A-flokk ungmenna
B-flokk gæðinga
B- flokk gæðinga áhugamenn
C- flokk gæðinga
Ungmenni
Unglingar
Börn
Tölt T1 meistaraflokk
Tölt T3 1.flokk og 2.flokk
Tölt T7 2.flokkur
100m Flugskeið

Keppendur eru beðnir að skoða vel reglur LH sem gilda um þátttöku í gæðingakeppni https://www.lhhestar.is/static/files/Log_LH/kafli-7-reglugerdir-um-gaedingakeppni.pdf

Pollar teymdir og pollar ríðandi ef veður leyfir.

Glæsileg verðlaun verða í öllum greinum og að auki verður gæðingur mótsins valinn sem og knapi mótsins.
Áhugamenn í A og B flokki ríða með reyndari knöpum í forkeppni en áhugamenn ríða svo sérstök úrslit sunnudaginn 7. júní og þurfa þeir sem ætla að skrá sig í áhugamannaflokk að tilkynna það með því að senda póst á motanefnd@sprettarar.is (knapi + hestur + keppnisflokkur)

Svanstyttan er veitt til heiðurs Svani Halldórssyni, stofnfélaga Gusts og síðar Spretts. Svanur hefur ávallt lagt mikið upp úr því að vera prúðbúinn, snyrtilegur og á vel hirtum hesti.
Svansstyttan er veitt Sprettsfélaga sem klæðist félagsbúningi Spretts á mótum og þykir ávallt vera til fyrirmyndar hvað varðar prúðmannlega reiðmennsku, klæðaburð og hirðingu hests, utan vallar sem innan.

Í ár verða í þriðja sinn veitt verðlaun í minningu Jónínu Guðbjörgu Björnsdóttur í Topphestum,Topphestastyttan. Þau verðlaun eru veitt knapa í yngri flokkum sem mætir til keppni á vel hirtum hesti og sýnir góða reiðmennsku.

Mótanefnd auglýsir eftir aðstoð við ýmis störf á mótinu, en framgangur mótsins veltur alfarið á góðum stuðningi félagsmanna. Áhugasamir setji sig í samband við mótanefndina motanefnd@sprettarar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar