Opið hestaíþróttamót í Skagafirði

  • 27. apríl 2012
  • Fréttir
Opið hestaíþróttamót í Skagafirði

Opið hestaíþróttamót (UMSS) verður haldið á Sauðárkróki 5.-6. maí að er fram kemur í tilkynningu frá hestaíþróttaráði Skagafjarðar.

„Keppt verður í hefðbundnum hesta íþróttagreinum ásamt létt tölt T7 (hægt, snúa við, svo frjáls ferð) og létt fjórgang V5 (beðið um frjáls ferð á tölti, hitt er eins) ef næg þátttaka næst (sbr. FIPO – www.feif.orgog http://lhhestar.is/is/page/fipo-leidari-2007-islenska).
Fjórgangur V1, tölt T1 og T2 og fimmgangur F1- fullorðnir – einn inná í einu.
Fjórgangur V2,  tölt T3, fimmgangur F2 – yngra flokkar – 2-3 inná í einu.

Við skráningu þarf að gefa upp:

 1.  nafn og kennitölu knapa
 2.  nafn og fæðingarnúmer hests (IS)
 3.  keppnisgrein
 4.  uppá hvaða hönd keppandinn vill riða (ekki fullorðnir)

Senda skráningu á [email protected]. Skráningu lýkur fimmtudaginn 3. maí kl. 21.

Skráningargjald er 4.000 kr. fyrir fyrstu skráningu en 1.000 kr á næstu skráningar hjá sama knapa. Leggja skal inn á reikning UMSS: 310 – 26 – 1997 Kt: 670269-0359 MUNA- skýring: nafn á hesti.“
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link