Opið íþróttamót á Sörlastöðum
Opið íþróttamót Sörla verður haldið á Sörlastöðum dagana 14. – 17.maí n.k.
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum greinum:
- Fimmgangur F1: meistarar
- Fimmgangur F2: unglingar, ungmenni, 2 flokkur 1. flokkur
- Fjórgangur V1: meistarar
- Fjórgangur V2: börn, unglingar, ungmenni, 2 flokkur 1 flokkur
- Tölt T1: meistarar
- Tölt T3: unglingar, ungmenni , 2. flokkur 1. flokkur
- Tölt T7: börn, unglingar, 2 flokkur
- Skeið: 100m, 150m, 250m
- Gæðingaskeið PP1: unglingar, ungmenni, 2. flokkur 1. flokkur, meistarar
- Slaktaumatölt T4: unglingar, ungmenni, 2. flokkur,1. flokkur
- Slaktaumatölt T2: meistarar
- Pollaþrígangur
- Pollar
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef ekki næst nægileg þátttaka.
Skráningagjöld eru 3.000 kr. á hverja keppnisgrein nema polla sem er 1.000 kr. Skráning hefst 3. maí og lýkur 9 maí.
ATHUGIÐ: Ekki verður hægt að skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.
Skráning er á eftirfarandi vefslóð: Sportfengur. Nánari leiðbeiningar um skráningu í Sportfeng má nálgast hér.
Athugið Í skráningakerfi Sportfengs er:
- Pollaþrígangsflokkur skráður sem þrígangur/annað
- Pollaflokkur skráður sem annað/annað
Í nýsamþykktum reglum um styrkleikaflokkun:
- er þrengd heimild þeirra sem taka þátt í léttari greinum, T7 og V5 til að taka þátt í öðrum keppnisgreinum á sama móti. Þetta er hugsað til að T7 og V5 þjóni sínum tilgangi fyrir minna vana knapa en fyllist ekki af vönum knöpum á nýjum hestum. (ÍSLENSK SÉRREGLA)
- geta knapar einungis keppt annað hvort í 1, 2 eða meistaraflokki, þ.e. einungis einum flokki á hverju móti.
Í lögum og reglum um keppni á vegum LH 2015-1 er eftirfarandi ritað um styrkleikaflokkun opins flokks:
- 2. flokkur: Hugsaður fyrir minna vant keppnisfólk. Hámark 3 keppendur inni á vellinum í einu. Til dæmis T3, T4, V2 og F2. Fyrir þennan flokk má nota venjulegar greinar og einnig léttari keppnisgreinar fyrir minna vant keppnisfólk sem finna má í kafla um keppnisgreinar. Til dæmis T7 og V5 fyrir þá sem ekki keppa fyrrtöldum greinum.
- 1. flokkur: Hámark 3 keppendur inni á vellinum í einu svo sem greinum T3, T4, V2 og F2 og fleirum. Meistaraflokkur:
- Í Meistaraflokki skulu notaðar hringvallargreinar þar sem keppendur eru einir inn á vellinum í einu; T1, T2, V1 og F1. Þar mega allir taka þátt og er hann hugsaður fyrir reynt keppnisfólk. Keppandi má einungis keppa í einum flokki, þ.e. 2. flokki, 1. flokki eða meistaraflokki á sama móti. Rísi ágreiningur um flokkaskiptingu keppenda, hefur mótsstjórn úrskurðarvald.
- Vonum við að þetta hjálpi keppendum við val á flokk og keppnisgreinum.
Frekari upplýsingar um lög og reglur í keppnum LH má finna hér: Lög og reglugerðir um keppni á vegum LH 2015 – 1 (link is external)
Nánari upplýsingar verða birtar á heimasíðu félagsins, fésbókarsíðu félagsins og öðrum hestamiðlum þegar nær dregur.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH