Opið Páskatölt á Flúðum

  • 11. apríl 2022
  • Fréttir
Skráning fram á miðvikudag

„Páskatölt hestamannafélagsins Jökuls í samstarfi við Bjarnarbúð og Sælgætisverksmiðjuna Góu verður haldið í reiðhöllinni á Flúðum laugardaginn 16. apríl n.k.

Keppt verður í T3 í eftirfarandi flokkum :

Opinn flokkur
2 flokki
Ungmennaflokki

Keppt verður í T7 í eftirfarandi flokkum:
2 flokki,
Unglingaflokki
Barnaflokki

Unglingar og börn sem vilja frekar keppa í T3 mega skrá sig upp um flokk (ungmennaflokk). Einnig verður boðið upp á pollaflokk en skráning verður á staðnum og frítt fyrir alla polla.

Mótanefnd áskilur sér að fella niður flokka ef næg þátttaka næst ekki. Mótið hefst kl 14:00, skráning lýkur 13. apríl á sportfeng.com, skráningargjaldið er 4.000 krónur í alla flokka. Mótið er opið öllum.“

Páskakveðjur mótanefnd hestamannafélagsins Jökuls.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link