Opinn hugarflugsfundur Harðarmanna
Fimmtudaginn 10.október n.k. verður opinn „hugarflugsfundur“ í Harðarbóli með það að markmiði að gera gott félag betra og hvernig við getum best virkjað félagsmenn til góðra verka.
Dagskrá fundarins:
Kl. 18.30 Kjötsúpa í kroppinn til að koma hugarfluginu í gang
Kl. 19.00 Fundur hefst formlega með stuttri kynningu formanns
Kl. 19.15 Gögn dreifð til fundarmanna og skipt í vinnuhópa
Kl. ____ Vinnuhópar kynna niðurstöðu sína
Áætlað er að hugarflugsfundi ljúki um kl. 21.00
Við viljum hvetja alla félagsmenn að mæta og ræða vetrarstarfið og hafa áhrif á félagsstarfið sem og koma með góðar hugmyndir.
Til að vinnan á þessum hugarflugsfundi nýtist sem best er brýnt að sjálfboðaliðar nefnda félagsins mæti á fundinn.
Hlökkum til að sjá ykkur, jafnt unga sem aldna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH