Páskamót Geysis
Opið Þrígangsmót verður haldið á skírdag, fimmtudag 1.apríl 2010 kl 20:00 í Rangárhöllinni á Hellu. Keppt verður í fimm flokkum þ.e. barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, áhugamannaflokkur og opinn flokkur. Þrígangurinn er fegurðartölt, brokk og hægt stökk.
Skráning verður á staðnum kl 19:00 – 19:45 og er þátttökugjaldið 2000 kr í alla flokka.
Byrjum nú páskana með skemmtilegu opnu og frjálslegu þrígangsmóti Geysis. Hittumst hress.
Styrktaraðilar:
- Arabær
- Hrólfsstaðahellir
- Miðkot
- Sandhólaferja
- Syðri-Úlfsstaðir
Vetrarmótanefnd Geysis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH