Páskar hjá Létti

  • 18. apríl 2011
  • Fréttir
Páskar hjá Létti

Eftirfarandi fréttatilkynning barst frá hestamannfélaginu Létti:

„Engin námskeið verða um páskana. Hvorki á sunnudag né á mánudag. Æfingamót verður fyrir börn, unglinga og ungmenni á fimmtudaginn kl. 12:00 í Top Reiter höllinni. Keppt verður í tölti T1 og T8 og fjórgangi. Skráning á staðnum fyrir kl. 11:45. 500 kr. hver skráning sem greiðist við skráningu.

Opna æskulýðsmót Léttis og Líflands veður haldið 23. apríl n.k. í Top Reiter höllinni, Akureyri.

Keppt verður í:

Unglingar – tölt og fjórgangur
Ungmenni – tölt og fjórgangur
Barnaflokkur keppir í tölti T8.

Mótið hefst klukkan 10:00 og aðgangseyrir er 500 kr.
Síðasti skráningardagur er miðvikud. 20 apríl kl. 18.
Skráning er hafin í Líflandi. Skráningargjald er 1000 kr.
fyrir fyrstu skráningu og 500 kr. fyrir skráningu tvö.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link