Pollaflokkur á Líflandsmótinu – skráning

  • 15. apríl 2011
  • Fréttir
Pollaflokkur á Líflandsmótinu - skráning

Skráning í pollaflokk Líflandsmótsins, sem fram fer á morgun, fer fram í dag föstudaginn 15. apríl..

Skráningar skal senda á netfangið [email protected] er fram kemur í tilkynningu frá æskulýðsnefnd Fáks.

Við skráningu þarf að koma fram: Nafn knapa, aldur knapa, nafn hests, litur og aldur hests. Tilgreina þarf flokk sem á að skrá barnið í en þeir eru þrír, pollar teymdir, pollar tvígangur og pollar tölt.

Skráningu í pollaflokk lýkur kl. 21 í kvöld.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link