Prufumót í Svaðastaðahöll í kvöld
Í kvöld miðvikudaginn 20. apríl verður keppt í slaktaumatölti, gæðingafimi og skeiði í reiðhöllinni Svaðastöðum.
„Hefst mótið kl. 20. Um er að ræða prufumót þar sem ekki hefur verið keppt áður í slaktaumatölti og gæðingafimi í reiðhöllinni Svaðastaðir. Aðgangseyri verður aðeins 500.- krónur og frítt fyrir 12 ára og yngri,“ segir í fréttatilkynningu frá mótshöldurum.
Meðfylgjandi eru ráslistar mótsins.
Dagskrá:
– Slaktaumatölt
– Gæðingafimi
– hlé
– Úrslit í Slaktaumatölti
– Skeið
– Úrslit í Gæðingafimi
Gæðingafimi:
1. Jenny Larsen – Skurður frá Einhamri.
2. Elvar Einarsson – Lárus frá Syðra-Skörðugili.
3. Íris Ósk Jóhannesdóttir – Nökkvi frá Stokkalæk.
4. Sandra María Marin – Maur frá Fornhaga.
5. Líney María Hjálmarsdóttir – Þytur frá Húsavík.
6. Ástríður Magnúsdóttir – Aron frá Eystri-Hól.
Slaktaumatölt:
1. Sandra María Marin – Stikla frá Efri-Mýrum.
2. Pétur Grétarsson – Eldur frá Svanavatni.
3. Elvar Þór Björnsson – Hnota frá Grænukinn.
4. Sveinn Brynjar Friðriksson – Sind frá Varmalæk.
5. Elvar Einarsson – Höfðingi frá Dalsgarði.
6. Sandra María Marin – Maur frá Fornhaga.
1 inná í einu í slaktaumatölti
Skeið:
1. Elvar Þór Björnsson – Glanni frá Blönduósi.
2. Hinrik Pétur Helgason – Hrefna frá Sauðárkróki.
3. Laufey Rún Sveinsdóttir – Prinsessa frá Laugarholti.
4. Ingimar Pálsson – Stakkarður frá Sauðárkróki.
5. Elvar Einarsson – Hrappur frá Sauðárkróki.
6. Sveinn Brynjar Friðriksson – Glaumur frá Varmalæk.
7. Bryndís Rún Baldursdóttir – Björk frá Íbishóli.
8. Steindóra Haraldsdóttir – Glanni frá Syðra-Skörðugili.
9. Jón Herkovic – Formúla frá Vatnsleysu.
10.Páll Bjarki Pálsson – Grána frá Óvissuhóli.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH