Ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra
Háskólinn á Hólum og Gló stuðningsfélag standa saman að alþjóðlegri ráðstefnu um dýrastudda nálgun í starfi með fólki, sem haldin verður á Hólum í Hjaltadal dagana 15.–16. maí 2026.
Ráðstefnan er ætluð öllu fagfólki og áhugafólki sem vill dýpka skilning sinn á því hvernig dýr geta stutt við vellíðan, þátttöku, nám og þroska í starfi með fólki. Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast nýjustu þekkingu, ólíkum sjónarhornum og reynslu þeirra sem hafa sérhæft sig á þessu sviði. Sérstök áhersla verður lögð á starf með hestum.
Meðal fyrirlesara verða sérfræðingar og fagfólk frá Íslandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Svíþjóð og Þýskalandi, auk kynninga frá Finnlandi, Noregi og Danmörku.
Ráðstefnan verður haldin á ensku og býður upp á vettvang fyrir fræðslu, samtal og tengslamyndun þvert á faggreinar og lönd.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Hólaskóla
Ráðstefna um þjónustu með aðstoð dýra
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni
Skeiðkappreiðar hjá Sörla
Karlatölt Kalda