Ráðstefnan Hrossarækt 2009
Árleg ráðstefna hrossaræktarinnar verður haldin á Hótel Sögu, laugardaginn 7. nóvember næstkomandi og hefst kl. 13:00.
Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum.
Ekkert þátttökugjald.
* Heiðursverðlaun afkvæmahryssna.
* Viðurkenningar til ræktunarbúa 2009.
* Áhugaverðir fyrirlestrar, opnar umræður.
Ráðstefnustjóri: Víkingur Gunnarsson.
Dagskrá:
13:00 Setning – Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt
13:05 Hrossaræktarárið 2009 – Niðurstöður kynbótamats – Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ
13:30 Heiðursverðlaunahryssur 2009
14:00 Tilnefningar til ræktunarverðlauna 2009
14:15 Erindi:
– Hross í frjálsri vist, Grétar Hrafn Harðarson, dýralæknir og Petra Mazetti, verkefnisstjóri
– Ófrjósemi í íslenskum hryssum, Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir
– Rannsóknir á Exemi, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri
15:30 Kaffihlé
16:00 Umræður – orðið laust um erindin og ræktunarmál almennt
17:00 Ráðstefnuslit
Fagráð í hrossarækt
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH