Ræktunarbú ársins
Það bú sem hlýtur Heiðursviðurkenninguna Ræktunarbú ársins 2024 er Skipaskagi en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíói. Ræktendur sem standa að baki Skipaskaga eru þau Jón Árnason, Sigurveig Stefánsdóttir og fjölskylda.
Þeirra árangur var einkar magnaður í ár en þau hafa ræktað hross með frábærum árangri í mörg ár. Þau standa einstaklega faglega að sinni ræktun og öllum hliðum undirbúnings, tamningar og sýningahalds. Verðlaun þeirra byggja á níu sýndum hrossum sem öll fóru í fyrstu verðlaun og var meðaleinkunn þeirra 8,37. Hrókur frá Skipaskaga stóð efstur yfir árið og á Landsmóti í flokki fimm vetra stóðhesta með hvorki meira né minna en 8,86 í aðaleinkunn frábær alhliða gæðingur. Þau Skyggnir, Sjafnar og Snerting hlutu öll yfir 8,40 í aðaleinkunn og Snekkja frá Skipaskaga er gullfallegur gæðingur. Þá hlaut Skaginn frá Skipaskaga heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á árinu.
Eiðfaxi óskar Jóni, Sigurveigu og fjölskyldu innilega til hamingju með árangur ársins!
Önnur bú tilnefnd voru:
- Auðsholtshjáleiga, Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir og fjölskylda
- Efri-Fitjar, Gréta Brimrún Karlsdóttir, Gunnar Þorgeirsson, Jóhannes Geir Gunnarsson og Tryggvi Björnsson
- Fet, Karl Wernersson, Bylgja Gauksdóttir og Ólafur Andri Guðmundsson
- Garðshorn á Þelamörk, Agnar Þór Magnússon og Birna Tryggvadóttir Thorlacius
- Grund II, Örn Stefánsson
- Hjarðartún, Óskar Eyjólfsson, Bjarni Elvar Pétursson og Kristín Heimisdóttir
- Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
- Leirulækur, Guðrún Sigurðardóttir og Sigurbjörn Jóhann Garðarsson
- Margrétarhof, Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Reynir Örn Pálmason og Montan fjölskyldan
- Skipaskagi, Jón Árnason, Sigurveig Stefánsdóttir og fjölskylda
- Sumarliðabær 2, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir
- Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth