Ræktunarbú ársins í Þýskalandi
Íslandshestaræktunarfélagið í Þýskalandi (IPZV) úthlutaði 23. mars síðastliðin verðlaunum fyrir góðan árangur kynbótahrossa. Ræktunarbúið Lipperthof hefur átt góðu gengi að fagna undanfarið og hlutu Uli og Irene Reber á Lipperthof titiilinn “Ræktendur ársins”.
Þau hlutu einnig viðurkenningu fyrir Spólíant frá Lipperthof “Ræktunarhestur ársins”. Spólíant er sonur Lykils frá Blesastöðum. Hlaut hann í maí 2012, 8,41 fyrir byggingu og 8,69 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt, vilja/geð og fegurð í reið.
Spólíant hlaut jafnframt hæsta dóm sem 5 vetra hestur úr þýskri ræktun hefur hlotið til þessa. Auk þess að vera einn af þremur hæst dæmdu hestum sem fæðst hafa í Þýskalandi.
Mynd: www.ipzv.de
birna.eidfaxi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH