Ræktunardagur Eiðfaxa aðgengilegur á netinu

  • 16. maí 2020
  • Fréttir

Ræktunardagur Eiðfaxa fór fram í Víðidalnum í Reykjavík um síðastliðna helgi. Veðrið lék við sýningargesti og allar aðstæður voru til fyrirmyndar í glampandi sól og blíðviðri. Eiðfaxi þakkar öllum þeim sem komu að þessum degi með einum eða öðrum hætti.

Knapar komu prúðmannlega fram og sýndu af sér mikla stundvísi sem varð til þess að Hvammsvöllurinn var sjaldan tómur eins og það á að vera á sýningum sem þessari. Þá ber sérstaklega að þakka Hestamannafélaginu Fáki fyrir aðstöðuna og æskulýðsnefnd Fáks fyrir að sjá um miðasölu og sölu á Stóðhestabókum.

Ennþá er hægt að kaupa aðgang að  Ræktunardeginum og horfa á hann í snjalltækjum.

Ef að dagurinn og kvöldið framundan er rólegt er því um að gera að tryggja sér marga af bestu hestum landsins og knöpum heim í stofu og horfa á Ræktunardag Eiðfaxa.

Smelltu hér til að kaupa viðburðinn og horfa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link