Ræktunardagur Eiðfaxa í beinni útsendingu

  • 20. apríl 2020
  • Fréttir

Ræktunardagur Eiðfaxa verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 9.maí og verður sýnt beint frá honum um allan heim í gegnum vef Eiðfaxa. Mikið verður lagt upp úr því að fólk geti notið hátíðarhaldanna heima í stofu og því verða fjölmargar myndavélar á staðnum auk þess að honum verður lýst á ensku, þýsku og íslensku. Verði á útsendinguna verður stillt í hóf en ljóst er að allir áhugamenn um íslenska hestinn, sama hvar þeir eru staddir í heiminum, geta fylgst með.

Nú þegar hafa ræktunarbú, afkvæmahópar og stóðhestar boðað komu sína og verða atriði auglýst þegar nær dregur. Allir þeir stóðhestar sem eru í stóðhestabók Eiðfaxa, sem gefin verður út í byrjun maí, eiga þátttökurétt á deginum.

Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á því að koma sinni ræktun á framfæri eru beðnir að hafa samband á [email protected] sem fyrst.

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link