Rafræn Árs og uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Sörla í kvöld
Rafræn Árs- og uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Sörla verður haldinn laugardaginn í dag 16. janúar og hefst útsendingin hefst kl 20:00 og stendur til 22:00
Ólafía Hrönn, Siggi Hlö og Guðni Ágústsson sjá um að halda uppi fjörinu.
Verðlaunaafhending til þeirra sem hafa unnið til afreka á árinu.
Uppboð: Folatollar undan hátt dæmdum stóðhestum.
Höfum gaman saman í fjölskyldu- eða hesthúsa,,kúlunni“ okkar.
Tilvalið að fara í sparifötin, kaupa partýpakka hjá Sörla og hafa gaman saman í stofunni heima.
Viðburðurinn er frír og vonumst við svo sannarlega til að fjölskyldur og félagar hittist og eigi ánægjulega stund saman. Hægt er að styrkja viðburðinn með því að leggja inn frjáls framlög á reikning Skemmtinefndar Sörla 544-26-111931 kt 640269-6509
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH